05.02.2014
Vegna þorrablóts Grunnskólans lýkur Frístundinni klukkan þrjú á fimmtudag.
Lesa meira
05.02.2014
Vegna endurmenntunar kennara lýkur kennslu allra nemenda klukkan 13:00 á föstudag.
Lesa meira
05.02.2014
Á morgun fimmtudag er tvöfaldur dagur hjá okkur í skólanum.Fyrrihluti dagsins er hefðbundinn og kennslu lýkur samkvæmt stundaskrá.
Klukkan 17:00 hefst Þorrablót skólans en þá er hefð fyrir því að nemendur og foreldrar þeirra mæti í Þórsver og borði saman þorramat sem fólk kemur með sér að heiman.
Verslunin Samkaup er full af ljúffengum þorramat og okkur er því ekkert að vanbúnaði að blóta þorrann!
Gestir taka með sér borðbúnað, glös og drykki og sjá sjálfir um fráganginn.
Hefð er fyrir því að gestir komi í þjóðlegum klæðnaði - lopapeysan er alltaf sígild, en hún er ekki nein skylda!
Nemendur hafa verið að undirbúa skemmtidagskrá fyrir Þorrablótið og munu standa fyrir glæsilegri dagskrá.
Búast má við að skemmtunin standi til klukkan 19:00 og þá taki frágangur við.
Frístund verður á morgun til klukkan 15:00.
Lesa meira
03.02.2014
Á morgun, þriðjudaginn 4.febrúar er samtalsdagur í skólanum.Umsjónarkennarar hitta nemendur sína og foreldra í sínum umsjónarstofum.
Vegna óhapps sem varð við austur inngang skólans, er gengið inn um vestur innganginn.
Verið velkomin og vonandi hafið þið notið þess að fara í gegnum námsmatsmöppurnar!
Munið að taka möppuna með í samtalið á morgun og ekki gleyma að fylla út vetrarsamtalsblaðið sem fylgdi með henni!
Allir eru velkomnir í kaffisofa á kaffistofunni okkar.
P.s: Þakkir fyrir frábærar viðtökur á skráningunni á Mentor! Bara snilld að það sé hægt að ganga svona frá skráningunum en þetta eykur líkurnar á því að allir fái tíma sem henti þeim sem best.
Lesa meira
29.01.2014
Samkvæmt hefð er leyfilegt að koma með sparinesti í skólann síðasta föstudag í mánuði.Á föstudaginn ætla krakkarnir í 7.og 8.
Lesa meira
29.01.2014
Á morgun fimmtudag, koma nemendur heim með námsmatsmöppurnar sínar til að sýna og kynna fyrir foreldrum sínum og forráðamönnum.
Í námsmatsmöppunni er eyðublað sem allir nemendur eiga að svara og koma með útfyllt í samtalið við kennarann sinn þann 4.
Lesa meira
19.01.2014
Vinsamlegast athugið að frá og með 20.janúar taka í gildi breytingar á stundaskrá nemenda í 5.- 10.árgangi.Þær eru tilkomnar vegna breytinga á kennaraliði skólans en einnig vegna breytinga á kennslufyrirkomulagi í 9.
Lesa meira
19.01.2014
Á morgun 20.janúar lætur Halldóra Sigríður af störfum sem kennari hér við skólann og Elín Finnbogadóttir kemur í hennar stað.Við þökkum Höddu fyrir frábærar samverustundir og góð störf hér við skólann - hennar verður sárt saknað, en maður kemur í manns stað.
Lesa meira
17.01.2014
http://www.youtube.com/watch?v=lLHx3ngQD6g
4.febrúar næstkomandi verður samtalsdagur nemenda, foreldra og kennara hér í skólanum.Bókun tíma fer nú fram í gegnum Mentor í fyrsta skipti.
Lesa meira
16.01.2014
Starfsfólk skólans fékk góða heimsókn frá Akureyri í liðinni viku, en þá leit Læsiskonan Ragnheiður Lilja inn til okkar og var með námskeið í kennsluaðferð sem nefnist ,,Orð af orði" og við erum að innleiða hér í skólanum.
Lesa meira