Skólahreysti er alveg að detta inn!

Nú fer heldur betur að færast fjör í leikinn. Þau Margrét, Þórhallur, Margrét Brá, Poitr, Dominik og Bergþóra eru nú þess albúin að keppa á miðvikudaginn í Skólahreysti inni á Akureyri! Það er mikil spenna í hópnum og ekki færri en 20 áhorfendur eru búnir að fjárfesta í bolum og ætla að mæta eldhressir á pallana og hvetja okkar fólk. Meðfylgjandi er bréf frá skipuleggjendum keppninnar. Póstur frá mótshöldurum