Viðburðaríkur dagur

Í dag hafa 10.bekkingar heimsótt fyrirtæki á staðnum og nemendur í 5. - 9. bekk fóru í Ísfélag Vestmannaeyja og heimsóttu þar landvinnsluna og bræðsluna. Það er skemmst frá því að segja að viðtökurnar þar voru höfðinglegar og nemendur drukku í sig fróðleik og skemmtun - og sáu jafnvel tilgang með því að læra eðlisfræði! Kiddi Kalli, Gunnar, Rabbi og Kiddi, kærar þakkir fyrir frábæran dag - þið eruð höfðingjar heim að sækja! - Sem og þið öll sem þar vinnið!