Við leitum að sérkennara

Grunnskólinn á Þórshöfn óskar eftir sérkennara. Lykilorð okkar  eru vinsemd, virðing, vellíðan og virkni og  þessi gildi leggjum við rækt við og leitumst við að uppfylla. Starfsfólk skólans hefur sinnt fjölbreyttu þróunarstarfi á liðnum árum og leggur áherslu á virkni og hlutdeild allra í skólabragnum. Áherslan er í skólastarfinu er á einstaklingsmiðað nám, fjölbreytta kennsluhætti, eflingu læsis, félagsfærni (ART) og samvinnu alls skólasamfélagsins, jafnt nemenda sem fullorðinna. Við óskum eftir sérkennara sem tilbúinn er til þess að vinna með í kennarateymum og  sinna fjölbreyttum verkefnum sem lúta að uppbyggingu sérkennslu við skólann og þróun hennar eftir hugmyndafræði skóla án aðgreiningar. Viðkomandi skal hafa kennsluréttindi í grunnskóla og lokið námi í sérkennslufræðum. Laun fara eftir kjarasamningi KÍ og sveitarfélaganna. Umsóknarfrestur er til 20. júní 2016 og skulu umsóknir sendar rafrænt til skólastjóra; ingveldur@thorshafnarskoli. Frekari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 8526264 eða í tölvupósti.