Umhverfisdagur í skólanum

Það er mikið um að vera í skólanum í dag; börn og starfsfólk er á ferð með málningarfötur og pensla með það að markmiði að skreyta bæinn sinn og flikka upp á skólalóð og landnámsmennina okkar sem standa vestan við skólann. Veðrið leikur við okkur, þó hann sé pínu kaldur (en við látum það nú ekki á okkur fá!) Námsmöppur fara heim í dag með 8. -10. bekk og eftir helgina hjá 1. - 4.og 7.  árgangi. Námsmat verður afhenti í 5. - 6. bekk á föstudag, samtalsdag. Foreldrar eru hvattir til þess að skoða vel námsmatið heima og koma svo spurningum sínum og fyrirspurnum til kennara eftir aðra helgi.