Tónleikar Kórs MH fyrir nemendur

Þann 11. apríl sem ber upp á mánudag verður Kór Menntaskólans við Hamrahlíð með tónleika fyrir nemendur grunnskólanna í Langanesbyggð í Þórshafnarkirkju. Tónleikarnir hefjast klukkan 13:00 og eru í um klukkustund. Allir nemendur skólans eru því í skólanum til um 14:10 þennan dag og þá mun skólabíll sömuleiðis fara en þennan dag fer hann frá kirkjunni. Nemendur í Frístund fara í sín verkefni skv. stundaskrá Frístundar.