Tónkvíslin 1. mars á Laugum

Laugardaginn 1. mars verður árleg söngkeppni Framhaldsskólans á Laugum haldin í Íþróttahúsinu á Laugum kl 19:30, keppnin hefur farið stigvaxandi frá ári til árs og er hún nú stærri en nokkru sinni fyrr þetta árið. Keppnin hefur vakið athygli um land allt og skarað fram úr á öllum sviðum og er orðin ein stærsta undankeppni söngkeppni framhaldsskólanna á landinu. Laugaskóli býður alla velkomna á einn stærsta tónlistarviðburð á Norðurlandi þar sem stjórnur framtíðarinnar stíga sín fyrstu skref