Tónkvíslin 1. mars

Laugardaginn 1. mars verður árleg söngkeppni Framhaldsskólans á Laugum haldin í Íþróttahúsinu á Laugum kl 19:30, keppnin hefur farið stigvaxandi frá ári til árs og er hún nú stærri en nokkru sinni fyrr þetta árið. Keppnin hefur vakið athygli um land allt og skarað fram úr á öllum sviðum og er orðin ein stærsta undankeppni söngkeppni framhaldsskólanna á landinu. Dagskrá: Húsið opnar 18:45 Landsþekktur leynigestur 2.000 - Fullorðnir 1.500 - Meðlimir í NFL 1.000 - Börn á grunnskólaaldri Frítt - Börn á leikskólaaldri Milli 13:00 og 17:00 Laugardaginn 1. mars verður sett upp kaffihús í Gamla skólanum (miðdeild) Kökur, pönnukökur, vöfflur, djús og margt margt fleira verður í boði! Laugaskóli býður alla velkomna á einn stærsta tónlistarviðburð á Norðurlandi þar sem stjórnur framtíðarinnar stíga sín fyrstu skref Tveir nemendur frá GÞ keppa á Tónkvíslinni í ár og mikill áhugi er fyrir því hjá nemendum unglingastigs að fara og fylgjast með sínu fólki. Foreldrar eru hvattir til þess að fara með börnum sínum á hátíðina og njóta þess sem er í boði. Ef áhugi er fyrir hendi þá mun GÞ leigjarútu fyrir áhorfendur sem ekki fara með sínum foreldrum og bílstjóra en farþegar greiði hóflegt fargjald sem rennur til olíukaupa. Skráningablað fer heim á morgun en einnig má prenta þetta skjal út:  tonkvisl (tengill). Áfram Þórshöfn!