Tími á samtalsdegi í skólanum

http://www.youtube.com/watch?v=lLHx3ngQD6g 4. febrúar næstkomandi verður samtalsdagur nemenda, foreldra og kennara hér í skólanum. Bókun tíma fer nú fram í gegnum Mentor í fyrsta skipti. Í meðfylgjandi myndbandi eru afar greinargóðar lýsingar á því hvernig það er gert. Skráning er hafin, en gætið þess að gefa ykkur tíma til þess að komast á milli kennara - hafið því tímana ekki of þétt. Gangi ykkur vel! Ef einhver vandræði koma upp, ekki hika við að hafa samband hingað í skólann í síma 4681458