Þema árshátíðar GÞ verða ævintýri H.C. Andersen

Nú styttist óðum í árshátíðina okkar og krakkarnir eru farnir að æfa leikrit og setja saman dagskrá hátíðarinnar sem verður tileinkuð ævintýrum H.C.Andersen. H.C. Andersen er enn ótrúlega vinsæll og á Disney samsteypan sinn þátt í því en nýjasta mynd þeirra Frozen er byggð á Snædrottningu Hans Christians. Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur verk hans heima fyrir og lesa með krökkunum ævintýri hans - tímalausar perlur sem höfð jafn sterkt til okkar í dag og fyrir 100 árum!