Þau eru farin út og suður!

Það er varla að maður geti sagt frá því öllu sem er að gerast í skólastarfinu okkar þessa dagana. 1. - 4. bekkur þutu út um allan bæ í ratleik í dag í alveg dásamlegu veðri. 8. og 9. bekkur lögðu land undir fót og eru í námsferð úti á nesi! Þar sofa þau í nótt í tjöldum á meðan Steini og Hanna María passa þau fyrir öllum draugunum sem þar leynast - bak við hvurn stein höfum við jafnvel heyrt! Í dag fór svo 7. bekkur í Ásbyrgi - í frábæru veðri! Frábær endir á góðum vetri!skálar