Þau eru að byrja í skóla!

Á föstudaginn var stór dagur í lífi margra barna hér á Þórshöfn því þau innrituðust í Grunnskólann. 10 ára skólaganga er að hefjast. Að baki eru rúm 3 ár í leikskólanum, sem kannski ætti að heita grunnskóli frekar? Krakkarnir sem eru 11 talsins fóru hér í myndatöku, fengu djús og ber - og létu hreint vel af sér! Flottir krakkar sem við hlökkum mikið til að fá!