Grunnskólinn á Þórshöfn mun sýna myndina mánudaginn 13. október fyrir nemendur í 5. - 7. árgangi. Hér má finna nánari upplýsingar um myndina, verkefnið í heild sinni og fleira frá ráðuneytinu. Frumsýning á Stattu með þér Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum, sem er samstarfsverkefni innanríkisráðuneytis, velferðarráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis, frumsýnir stuttmyndina Stattu með þér. Stattu með þér er ætluð nemendum á miðstigi grunnskóla og gerð í framhaldi af Fáðu já sem framleidd var fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum. Myndirnar eiga það sameiginlegt að vera ætlað að vinna gegn kynferðisofbeldi og klámvæðingu með sjálfsvirðingu og jákvæðni að leiðarljósi. Stattu með þér er fyrsta fræðsluefni sinnar tegundar fyrir þennan aldurshóp og standa vonir til að kennarar og foreldrar nýti það til að efla 10-12 ára börn í að standa með sér gegn staðalímyndum og útlitsdýrkun og rækta sjálfsvirðingu í mannlegum samskiptum. Forsýning á Stattu með þér var sl. mánudag við hátíðlega athöfn í Bíó Paradís þar sem aðstandendur stuttmyndarinnar og leikarar horfðu saman á myndina, að viðstöddum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra. Jóna Pálsdóttir formaður Vitundarvakningar, Brynhildur Björnsdóttir leikstjóri og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir ávörpuðu sýningargesti fyrir sýningu. Viðburðurinn var vel sóttur en áætlaður fjöldi var 160-170 manns. Frumsýning Stattu með þér verður fimmtudaginn 9. október í öllum grunnskólum á landinu sem eiga þess kost að sýna hana þá. Skólastjórar fengu myndina senda á DVD-diski og prentaðar kennsluleiðbeiningar til þess að undirbúa sig og annað skólafólk. Sérstök athöfn verður í Hólabrekkurskóla kl. 11 þar sem Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra mætir af því tilefni. Á frumsýningardag opnar vefurinn www.stattumeðþér.is formlega. Á þeirri síðu verður hægt að nálgast Stattu með þér í heilu lagi og í hlutum, textaðar útgáfur, kennsluleiðbeiningar, lag myndarinnar og fleira. Nánari upplýsingar eru á vel.is/vitundarvakning
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is