Starfsmannamál skólans

Búið er að ráða tvo stuðningsfulltrúa til starfa næsta vetur, þær Anítu Dröfn Reimarsdóttur en hún mun sinna gæslu, frístund og vera til aðstoðar í 1. - 4. árgangi. Oddný Sigríður Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem stuðnignsfulltrúi þvert á árganga í skólanum. Við fögnum því að fá þessar góðu konur, aftur til starfa hjá okkur og þökkum öllum sem sýndu áhuga og viðbrögð við auglýsingu okkar um laus störf. Enn vantar umsjónarkennara í 1. og 2. árgang næsta vetur en unnið er í að manna þá stöðu sem fyrst.