Athugið foreldrar og forráðamenn.
Á mánudaginn næstkomandi (16. mars) verður starfsdagur í Grunnskólanum á Þórshöfn að tilmælum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Frá sambandinu barst eftirfarandi:
"Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
Mikilvægt er að sveitarfélögin vinni að skipulagningu skólastarfs m.v. ofangreindar ákvarðanir og aðstæðna á hverjum stað. Sambandið hvetur öll sveitarfélög sem reka leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili til að hafa starfsdag mánudaginn 16. mars til þess að stjórnendur í samvinnu við starfsmenn geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili. Einnig er afar mikilvægt að halda foreldrum leik- og grunnskólabarna vel upplýstum."
Endilega látið berast ykkar á milli þar sem þetta er óvænt og ekki á skóladagatali.
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is