Skólaslit, handverkssýning og kaffihús

Skólaslit verða á morgun laugardaginn 30.maí kl. 14 í Þórshafnarkirkju. Að þeim loknum verður foreldrafélag grunnskólans með kaffisölu í félagsheimilinu Þórsveri. Ágóði þeirra sölu rennur til kaupa á útileiktækjum á skólalóð grunnskólans. Á sama tíma er opin handavinnusýning í grunnskólanum þar sem sjá má afrakstur vetrarins. Allir hjartanlega velkomnir.