Skólahreysti á morgun, miðvikudaginn 11.mars 2015

Nú er stór dagur framundan hjá Grunnskólanum á Þórshöfn. Árla morguns leggur fríður hópur af stað til Akureyrar til að keppa í Skólahreysti. Í ár keppum við í þriðja sinn og spenningurinn er mikill. Nemendur unglingastigs fjölmenna til Akureyrar til að hvetja okkar lið. Foreldrar fjölmenna sömuleiðis og nemendur allt niður í 6. bekk bregða sér af bæ til að kynnast keppninni og setja svip sinn á pallana! Þar verða allir klæddir í bleikt - því hann er litur okkar í ár! Fararstjórar eru þau Valgerður og Steini! Áfram Þórshöfn! Hressir keppendur 2014!