Skilaboðaskjóðan í hverju horni

Nú er gaman að vera fluga á vegg í skólanum! Í hverju horni eru nemendur að æfa textann sinn fyrir árshátíðina og það gera þau af miklum myndarskap og ábyrgð. Hér í skólanum er að vaxa upp efnilegur leikarahópur. Þau hafa sett upp stór stykki á árshátíð og ekki skemmir frábært leiklistarnámskeið vetrarins!