Skapandi skólastarf á jólastöðvum fimmtudag og föstudag

Á fimmtudag og föstudag verður skapandi skólastarf í hávegum haft hér í skólanum. Þá verða jólastöðvarnar og fjölbreytt verkefni í boði. Á föstudag verður tvöfaldur dagur þannig að nemendur verða áfram í skólanum til klukkan 17:00 og taka á móti foreldrum sínum, sysktkinum, ömmum, öfum og öðrum þeim sem hafa áhuga á því að koma í skólann og sýna þeim afrakstur þessara jólastöðva. Gestum verður boðið upp á kaffi, kakó með rjóma og nemendur koma með smákökur að heiman til að gæða sér á (eða kex úr búiðinni). Á jólastöðvum verða fjölbreytt verkefni og vonandi finna allir nemendur eitthvað við sitt hæfi. Hér má finna þau verkefni sem verða í boði þessa daga - ath að ekki er endilega um myndir af því sem verður nákvæmlega gert - heldur einingus vísbeningar! ATH: Allir nemendur þurfa að koma með hvíta sokka með sér í skólann og e.t.v. mislitan eða mynstraðan einstæðing til að skreyta og lífga upp á snjókarlana (sjá myndir). Með von um góða mætingu á föstudaginn og ljúfar stundir á jólastöðvunum (en fólk er einnig velkomið á meðan á vinnustöðvunum stendur). Eldra stig á Bakkafirði verður með báða dagana og heimferð er klukkan 14:00 hjá þeim báða dagana en þá lýkur skólanum þessa daga. Jólakveðjur, starfsfólk skólans