Samræmd próf verða lögð fyrir 9. bekkinga nú á dögunum. Íslenskuprófið í morgun gekk ekki sem skyldi þar sem netþjónn í Evrópu þoldi ekki álagið. Einungis þrír nemendur af ellefu náðu að ljúka prófinu hér í Grunnskólanum á Þórshöfn. Menntamálastofnun gaf út tilkynningu þess efnis að hægt væri að fresta prófinu en ekki hefur verið gefin út ný dagsetning fyrir það. Á morgun fimmtudag er stærðfræðiprófið og vonum við bara allt það besta og að betur muni liggja á netþjóninum þá.
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is