Samlokusala á fimmtudaginn

Nú nálgast mánaðarmót og það þýðir bara eitt, ja eða tvennt! Samlokusölu 10. bekkinga sem er þeirra fjáröflun og sparinesti. Hvernig væri nú að útbúa sérstaklega girnilega samloku eða taka með sér ávaxta og berjakokteil til að narta í með samloku þeirra í 10. bekk? Pantanir verða teknar nú á miðvikudaginn.