Sá sjötti, Askasleikir

Aðfaranótt 17. desember kemur Askasleikir til byggða. Honum þykir afar gott að sleikja aska heimilisfólks en líklega verður hann að láta sér nægja að sleikja diska okkar mannfólksins því þeir hafa leyst hinn forna borðbúnað af hólmi. Það er ef við höfum ekki þegar sett þá í uppþvottavélina!  Jóhannes úr Kötlum segir svo frá: Askasleikir e. Tryggva Magnússon Sá sjötti Askasleikir, var alveg dæmalaus.- Hann fram undan rúmunum rak sinn ljóta haus. Þegar fólkið setti askana fyrir kött og hund, hann slunginn var að ná þeim og sleikja á ýmsa lund. ólafur_aska Askasleikir e. Ólaf Pétursson