Sá fjórði, Þvörusleikir

Við höldum áfram að fara í gegnum ljóðabálk Jóhannesar úr Kötlum um íslensku jólasveinana, meðfylgjandi eru myndir tveggja listamanna eins og þeir sáu kauða. Aðfaranótt 15. desember kemur Þvörusleikir, en þvara er sleif og það besta sem hann veit er að sleikja hana! Þvörusleikirinn hans Tryggva. Sá fjórði, Þvörusleikir, var fjarskalega mjór. Og ósköp varð hann glaður, þegar eldabuskan fór. Þá þaut hann eins og elding og þvöruna greip, og hélt með báðum höndum, því hún var stundum sleip. Ólafuryule_tvoru