Nú nálgast óðum vorið. Um leið og vorið er tími gróðursetningarinnar er það líka uppskerutími hér í skólanum. Við tökum saman það sem við höfum lært, metum það og rifjum upp. Þetta gerum við í námsmatinu okkar en námsmat getur verið með ýmsu sniði. Námsmat er nefnilega ekki bara próf þó þau séu það matstæki sem við þekkjum best. Margt af því sem metum í skólastarfinu er ekki gott að meta með prófum, t.d. það nám sem á sér stað í kjölfar árshátíðar eða skapandi skólastarf þar sem nemendur vinna saman eða einir að fjölbreyttum verkefnum þar sem ýmis hæfni er þjálfuð. Námsmatið okkar í Grunnskólanum á Þórshöfn er leiðsagnarmat. Leiðsagnarmat er leiðbeinandi fyrir alla, foreldra, nemendur og starfsfólk skólans þar sem tekið er saman það sem nemandi hefur náð að tileinka sér og eins hitt hvað þarf að þjálfa betur þannig að nemandinn geti nýtt sér það í frekara námi. Leiðsagnarmat er í þágu náms. Mat á félagsfærni, sjálfsmat, jafningjamat og símat eru allt dæmi um námsmatstæki sem við nýtum hér í skólanum. Námsmatið á að endurspegla þá kennsluhætti sem notaðir hafa verið og byggja á traustum heimildum. Nemendur geta undirbúið sig með fjölbreyttum hætti í prófavikunni. Hér má finna afar góða samantekt á þeirri námstækni sem gott er að þjálfa fyrir próf og mikilvægt er að hafa í huga að ábyrgðin liggur hjá nemandanum því enginn getur sinnt þessari vinnu fyrir hann, en kennarar og heimilin geta stutt við undirbúninginn með ýmsum hætti.
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is