Í dag mæta hinar ýmsu kynjaverur í skólann og skemmta sér. Hefðbundið skólahald verður fram að hádegi með uppbroti af andlitsmálningu og leiklistaræfingum. En eftir hádegi er leyfi veitt, líkt og undanfarin ár, fyrir nemendur að skottast um bæinn syngjandi og fá þá kannski eitthvað gott fyrir. Foreldrafélag grunnskólans og foreldrafélag leikskólans halda öskudagsball í Þórsveri kl 15. Sleginn verður kötturinn úr tunnunni, spiluð skemmtileg tónlist og marzerað verður létt um salinn! Foreldrar eru hvattir til að mæta í búningum! Hér má sjá sýnishorn af búningum nemenda í skólanum í morgun:
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is