Öskudagsball kl. 15 í Þórsver

Foreldrafélög grunnskólans og leikskólans heldur Öskudagsball í Þórsveri á morgun kl 15. Kötturinn verður að sjálfsögðu sleginn úr tunnunni og skemmtileg tónlist til að dansa við. Etv skellum við okkur í léttan marz líka! Foreldrafélag GÞ verður með pylsur og safa/kókómjólk til sölu á kr. 500 á staðnum sem fjáröflun fyrir útileiktækjum. Vonandi sjáum við sem flesta í búningum. Allir velkomnir