...og þau eru flogin út í vorið!

Að tína rusl (sem einhver hefur týnt á leið sinni um heiminn). 1. - 4. árgangur er lagður í hann út í Tófutanga en þar ku vera mikið rusl og drasl, plast og annar óþverri sem vaskir skólakrakkar eru tilbúnir að taka til handagagns. Með í för er nesti og nýir skór! Við hlökkum til að fá þau aftur til baka! Reynslunni ríkari af hjólaferð!