19.04.2016
Á morgun, miðvikudag:
Skólabíll mun fara frá skólanum 12:10 og aka nemendum heim. Ekki verður skólabíll síðar um daginn og eru foreldrar beðnir um að koma börnum sínum út í Þórsver á tilgreindum tíma - sjá neðar í færslunni.
Mæting hjá völdum elstu nemendum í smink verður klukkan 14:30 og 15:00 og munum við hafa samband sérstaklega við þá sem við viljum að mæti fyrst í förðun.
Aðrir bekkir mæta á tilteknum tíma, sjá hér að neðan:
Þeir sem farða eru: Oddný, Ásdís, Ingveldur, Anna María, María (Etv Bylgja eða nemandi frá Bakkafirði). Aðrir áhugasamir og klárir í förðun eru velkomnir.
Fyrsti hópur mætir 14:30 Nemendafélag og eldri nemendur
Ingveldur raðar í hópa og lætur þá vita Stuðningsfulltrúi: Oddný
Annar hópur mætir 15:00 Eldri nemendur
Ingveldur raðar í hópa og lætur þá vita
Þriðji hópur mætir 15:30 5. Og 6. bekkur Allir
Stuðningsfulltrúi: Helga
Fjórði hópur mætir 16:00 3. – 4. árgangur Allir
Stuðningsfulltrúi: Aníta
Fimmti hópur mætir 16:30 1. Og 2. Árgangur Allir Stuðningsfulltrúi Magga
Í hléi – viðhald og yfirferð
Skólabíll fer frá skólanum 12:10 eða þar um bil. Ekki er skólabíll á árshátíðina eða í sminkið.
Frístund er til klukkan 15:00
Dagskráin hefst klukkan 17:00 og eru allir vinir og velunnarar skólans velkomnir, ættingjar og vinir nemenda eru aufúsugestir.
17:00 Ávarp skólastjóra og kynnum falin stjórn samkomunnar.
2 leikþættir leiklistarvals Grunnskólans í umsjón Árna Davíðs
Hlé - Í hléi verður sjoppa, en ágóði af sölu góðgætisins rennur til smáleiktækjakaupa f. útrifrímínútur.
Eftir hlé (um 17:50)
Skólaboðaskjóðan í umsjón umsjónarkennara.
Allir nemendur skólans flytja leikritið Skilaboðaskjóðuna e. Þorvald Þorsteinsson
Áætluð lok dagskrár er um 19:10.
Foreldrar og gestir eru beðnir um að stafla stólum eftir því sem við verður komið að dagskrá lokinni.