Njótum skoteldanna í kvöld

Jafn dásamlega fallegir og skemmtilegir skoteldarnir geta verið eiga þeir sér sinn stað og sína stund. -Og sá staður er ekki skólinn né skólalóðin - og stundin er hreint ekki skólatími! Notkun skotelda veldur ónæði fyrir bæði menn og dýr, óþrifnaði og skapar hættu fyrir nemendur skólans (sbr. þessa grein í Læknablaðinu, þar má m.a. finna myndir sem gott er að sýna unglingunum okkar). Njótum því skoteldanna í kvöld í góðra vina hópi undir öryggri stjórn og leiðsögn hinna fullorðnu! Góða skemmtun! Þrettándakveðjur