Námsmatsvikan hafin

Nú í þessari viku verður formlegt námsmat í skólanum okkar. Nemendur fá í hendur ýmis verkefni og eða próf sem þeir eiga að leysa eftir bestu getu. Kennarar hafa sent upplýsingar heim, gátlista og fleira sem nemendur ættu endilega að nýta sér sem best. Námsmat er gríðarlega mikilvægt í starfi nemenda og kennara og því mikilvægt að það sé vel gert og nýtist vel. Eygló R. Sigurðardóttir segir þetta um árangursríkt námsmat: Ekki er allt námsmat gagnlegt og nauðsynlegt. Of erfið og ítarleg próf geta haft neikvæð áhrif á nemendur og kennarar þurfa að íhuga vel hvers konar námsmat hentar sérhverju viðfangsefni, nemendum og markmiðum námsins. Árangursríkt námsmat: tekur mið af umfangi námsins er hluti af námsferlinu, bæði fyrir nemendur og kennara stjórnast af ákveðnu ferli með viðeigandi gögnum eflir árangursríkt nám þegar það er notað á réttan hátt ákvarðar hvaða skref skal taka næst í náms- og kennsluferlinu býður upp á jákvæða leið til að staðfesta hæfileika, getu og skilning hefur fjölbreyttan tilgang, það hjálpar bæði nemendum og kennurum að skoða stöðuna miðað við markmiðin og getur þannig stuðlað að framförum er fjölbreytt, s.s. munnlegt, skriflegt, einstaklings- eða hópmat, fyrirvaralaust eða undirbúið, háð aðstæðum hverju sinni hjálpar kennurum að koma til skila réttri þekkingu og svörun (feedback) er hægt að nota til að fylgjast með félagslegum, bóklegum og hegðunar framförum nemenda. Námsmat er árangursríkt þegar: nemendur taka virkan þátt í námsmatinu það er notað til að hjálpa nemendum til að bæta sig í náminu það er hluti af námsferlinu það tengist vel viðfangsefninu, markmiðum og námsskránni það er vel framsett og útskýrt fyrir nemendum (eyglo.com)