Námsmatsmöppurnar fara heim á morgun

Á morgun fimmtudag, koma nemendur heim með námsmatsmöppurnar sínar til að sýna og kynna fyrir foreldrum sínum og forráðamönnum. Í námsmatsmöppunni er eyðublað sem allir nemendur eiga að svara og koma með útfyllt í samtalið við kennarann sinn þann 4. febrúar. Mikilvægt er að skoða hverja námsmatsmöppu vel, fara yfir námsmatið og ræða saman um niðurstöðurnar. Gott er að skrifa hjá sér spurningar eða athugasemdir til þess að koma með í samtalið við umsjónarkennarann sinn. Þá er minni hætta á að nokkuð gleymist. Gefið ykkur góðan tíma til þess að fara í gegnum möppurnar, því það er nokkuð tímafrekt. Námsmatsblöð vetrarannarinnar eru blá, og líta út eins og myndin sem hér fylgir með. Græn námsmatsblöð tilheyra vorönn 2013.