Námsmat og undirbúningsdagur

Nú er námsmatsviku lokið hjá okkur í grunnskólanum. Nemendur hafa staðið sig með prýði þessa vikuna líkt og aðrar. Á mánudaginn er leyfi hjá nemendum en þá er undirbúningsdagur starfsmanna. Þá tekið til hendinni í allskyns tiltekt, kennarar fara yfir námsmat og undirbúa námsmatsmöppur nemenda. En föstudaginn 29.janúar er samtalsdagur. Við minnum foreldra á að skrá sig á samtalsdaginn en opnað verður fyrir skráning á mánudaginn nk. Skóladagatalið okkar má nálgast hér á heimasíðu skólans undir Ýmsar upplýsingar eða smella hér.