Námsefniskynning hjá 5. - 7. árgangi á morgun, miðvikudag

Það er aldrei dauð stund hér hjá okkur í skólanum og á morgun, miðvikudag verða umsjónarkennarar og nemendur i 5. - 6. árgangi og 7. árgangi með kynningar á starfi vetrarins í sínum heimastofum, Brimnesi og Eldjárnsstöðum. Við hvetjum alla foreldra til að koma í skólann og hlýða á kynningarnar og fá sér kaffi úr þessari líka fínu kaffivél sem leyst hefur af hólmi hina gömlu/nýju vel, sem gaf upp öndina! Verið hjartanlega velkomin.