Ljóð dagsins

Sjávarkauptún á hvíldardegi

Það líður frá hádegi. Hafgolan leitar inn: um húsasund og götur fer gustur blýlitaður. Mjög stakar verða strjálar persónur utandyra fyrir opnu Norðrinu. Fjörðurinn í boga blágrænn við sand og malir í stórum boga sem er stjörnunum samboðinn. Og hjartað fylgist með deginum: daufgerðum, löngum mínútum í halarófu inn undir himin kvöldlygnunnar. Hannes Pétursson