Litlu jólin á morgun!

Á morgun er hátíðardagur í skólanum okkar! Litlu jólin eru ætíð einn af helstu viðburðum skólaársins - enda mikil hátíð. Litlu jólin hefjast klukkan 16:00 á morgun og nemendur mega koma með nammi með sér í skólann og drykk að eigin vali. Nemendur eiga sömuleiðis að koma með pakka á litlu jólin sem kosta um 500 - 1000 krónur - rétt til að gleðja bekkjarfélagana. Klukkan 18:00 er nemendum skólans boðið til kvöldverðar í Þórsveri ásamt starfsfólki skólans. Hafið því í huga að stilla veitingum á stofujólunum í hóf - svo krakkarnir fái notið matarins sem Karen mun bera fram af sinni alkunnu snilld!