Lífshlaupið og Grunnskólinn á Þórshöfn

LífshlaupiðNú hefur Lífshlaupið rennt sér af stað enn eitt árið og við höfum skráð okkur til leiks. Börn við Grunnskólann á Þórshöfn hreyfa sig alla jafna, jafn mikið eða nokkru meira en jafnaldrar þeirra á landsvísu en þau borða heldur óhollari mat, þ.e.a.s. fá sér oftar gos, sælgæti og skyndirétti en aðrir krakkar á landsvísu, samkvæmt niðurstöðum Skólapúlsins frá því núna í haust. Það ætti því að vera lítill vandi fyrir krakkana hér að hreyfa sig í 60 mínútur alls daglega. Það er ekki bara unga fólkið sem hefur gott af hreyfingu, öðru nær. Hinir fullorðnu þurfa þess ekki síður, og þeim gefst einnig kostur á að vera með í Lífshlaupinu. Ávinningurinn er mikill og vinnustaðir, sem stuðla að reglulegri hreyfingu starfsfólks,eru einnig líklegir til að uppskera:

• þrekmeira og heilsuhraustara starfsfólk,

• bætt samskipti og aukna starfsánægju,

• betri starfsanda og öflugri liðsheild,

• fækkun veikindadaga og færri slys,

• minni starfsmannaveltu,

• meiri framleiðni,

• jákvæðari ímynd.

Mælt er með 30 mínútna hreyfingu fullorðinna en 60 mínútum fyrir grunnskólabörn. Hreyfingin þarf ekki að vera samfelld.

Hér má lesa um hreyfingu í grunnskólum, bækling frá Lýðheilsustöð. http://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item12220/Handbok-um-hreyfingu_net_allt.pdf