Leiklistarnámskeið hefst í dag

Í dag hefst leiklistarnámskeið fyrir nemendur Grunnskólans á Þórshöfn sem Foreldrafélagið okkar stendur fyrir. Birtum við hér tímaáætlun fyrir alla bekki og biðjum foreldra að athuga að ekki falla allir tímar inná skólatíma. Í einhverjum tilfellum og þá sérstaklega hjá eldri nemendum ná þau ekki að nýta sér skólabíl til heimferðar. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu skólans ef eitthvað er óljóst.