Á Langanesi eru fjöldi eyðibýla, sem geyma sögu lands okkar og þjóðar. Við förum fram hjá mörgum þeirra þegar haldið er út að Járnkarli eða að Skálum. Þegar við h0rfum heim þar sem bæirnir stóðu gerum við okkur ljósa grein fyrir þeim hvunndegi sem forfeður okkar lifðu - veður gátu verið válynd og hafið reynst erfiður nágranni, en á góðum degi þegar sólin skín vitum við líka að Langanesið var gjöfult, fugl, egg, æðardúnn og nálægð við gjöful fiskimið voru ómetanlegar auðlindir. Hér í skólanum höfum við gefið stofunum okkar nöfn nokkurra eyðibýla og ég læt skjalið með þeim fylgja hér með að gamni. Hvur veit kannski náum við að læra þessi heiti einhvern daginn! Stofuheiti má finna hér og staðsetningu stofanna.
Langanesvegi 20 | 680 Þórshöfn Sími kennarastofu 468-1454 Sími skólastjóra 468-1164 |
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:
Árni - 468-1454 arni@thorshafnarskoli.is
Hilma - 468-1164 hilma@thorshafnarskoli.is