Kennarar samþykkja vinnustöðvun

Nú á fimmtudaginn, 15. maí er fyrsti verkfallsdagur af þremur sem hefur verið boðaður hjá Félagi grunnskólakennara. Ef af verður, er því engin kennsla hér í GÞ þar sem allir þeir sem sinna kennslu hér í skólanum eru í FG. Skólastjóri og stuðningsfulltrúar verða við vinnu. Það er von mín að vinnudeila leysist sem fyrst með sem farsælustum hætti fyrir alla hlutaðeigandi.