Jólatónleikar Tónlistarskóla Þórshafnar

Í dag voru haldnir frábærir tónleikar í kirkjunni hér á Þórshöfn. Þeim stjórnaði Kadri af miklum myndugleika þar sem nemendur á grunnskólaaldri fluttu fjölbreytta dagskrá: Jólalög auk annarra voru sungin og leikin - meðal annars heyrðust tónar ættaðir frá Edward Grieg. Frábær mæting var á skemmtunina sem var í alla staði hin veglegasta. Myndina tók Eyþór Jónsson af nemendum Tónlistarskóla Þórshafnar, en þeir eru úr Langanesbbygð og Svalbarðshreppi. Til hamingju Kadri og þið öll!