Desember - uppfært

Það er með ólíkindum hve tíminn líður! Um helgina er fyrsti sunnudagur í aðventu sem þýðir að fjórar helgar eru til jóla! Skólinn mun smám saman klæðast jólafötunum sínum og nemendur koma þar svo sannarlega við sögu! Á fimmtudag og föstudag mun skapandi skólastarf vera í hávegum haft! Allir nemendur skólans munu færast á milli fimm ólíkra stöðva og vinna að fjölbreyttum verkefnum.  Fimmtudaginn 5. desember verða allir nemendur í skólanum til klukkan 14:00. Föstudaginn 6. desember lýkur skóla klukkan 11:50 en sérlega hátíðlegur matur verður í mötuneytinu þann dag! 18. desember verður kirkjuferð þar sem nemendur ganga til kirkju og kynnast helstu táknum jólanna og hlýða á jólasögu. 19. desember ATH tvöfaldur dagur BREYTING FRÁ SKÓLADAGATALI 8:10 Hefðbundin kennsla til hádegis. Nemendur undirbúa litlu jólin. Hádegisverður fyrir þá sem eru í mötuneyti. 12:00 Hlé 16:oo Stofujól (munið pakkaleikinn) 18:00 Hátíðarkvöldverður fyrir alla nemendur Grunnskólans og starfsfólk. 19:00 Jólafrí! ATH: 19. desember er tvöfaldur dagur og því skyldumæting bæði helminga hans 20. desember - frí!