Jólastöðvar eru komnar í gang

Nú eru okkar árlegu jólastöðvar komnar í gang og vinnu- og jólaandinn svífur hér um ganga. Engar íþróttir né sund er þessa tvo daga. Í dag, fimmtudag, eru allir nemendur búnir í skólanum kl. 14. Skólabíll fer kl. 14.10 þegar frágangi er lokið. Frístund er síðan opin til kl. 16 eins og venjulega. Á morgun, föstudag,  er tvöfaldur skóladagur. Við byrjum kl. 8.10 og ljúkum jólastöðvum kl. 14. Þá förum við í frágang og tiltekt, hjálpumst að við að gera skólann tilbúinn fyrir móttöku foreldra. Foreldrar eru boðnir velkomnir milli kl. 14.30 – 16.30. Boðið verður upp á kakó og smákökur. Nemendur geta gengið á milli og sýnt foreldrum sínum afrakstur jólastöðvanna og taka heim með sér sín verk. Ekki verður skólabíll á föstudag heim, gert er ráð fyrir að foreldrar sæki sín börn. Gæti nú verið að eins og ein jólamynd fái að ganga á meðan.