Í nógu að snúast

Það er mikil blíða á Þórshöfn í dag - og mikið verk óunnið í því að flokka og skrá niður athugasemdir okkar varðandi allt þetta rusl sem við fundum á ferðum okkar í gær og fyrradag. Þá getur nú komið sér vel að fara út með borð og stóla og sinna vinnunni utandyra! Útinám er til í mörgum myndum - og ein aðferðin er að flytja skólastofuna þangað þar sem viðfangsefnin eru.