Hvernig líkar þér nýi vefur skólans?

Á liðnum vikum höfum við í skólanum verið að þreifa okkur áfram með nýjan vef hér á wordpress. Gamli vefurinn okkar á grunnskolinn.is/thors, þykir þungur og erfiður í umgengni. Þó wordpress verði e.t.v. ekki framtíðarstaður skólavefs GÞ, þá kunnum við um margt ágætlega við þetta viðmót. En ekki síður er mikilvægt að vita hvernig notendur vefjarins kunna við sig. Gott væri því að fá álit ykkar á vefnum, ef þið megið vera að - svona mitt í jólaönnunum!