Hjólaferð á morgun hjá 1. - 4. árgangi

Fyrirhuguð er hjólaferð á morgun, svo framarlega að ekki verði af vinnustöðvun kennara. Nemendur þurfa að koma með hjól, hjálma, vera vel klædd og þeir sem eiga endurskinsvesti mega endilega koma með þau. Krakkarnir mega koma með sparinesti í bakpoka til að taka með sér. Ef af vinnustöðvun verður þá færist þessi ferð yfir á fimmtudag. Bestu kveðjur starfsfólk