HIV Ísland með fræðslu á Þórshöfn

Í dag fengu nemendur í 9. og 10. bekk fræðslu um HIV veiruna en þá fræðslu veitir HIV Ísland annað hvert ár, um allt land. Markmið og tilgangur félagsins er að auka þekkingu og skilning almennings á hiv og alnæmi og styðja hiv smitaða, sjúka og aðstandendur þeirra. Þessi megin markmið hafa ekkert breyst á þeim 25 árum sem félagið hefur starfað enda þörfin fyrir stöðuga fræðslu til almennings mikil, þrátt fyrir gríðarlega miklar og jákvæðar framfarir í meðferð og þekkingu manna á hiv og alnæmi síðustu árin. Á vinnuplöggum um stefnu og framtíðarsýn Hiv Ísland fyrir árið 2014 er unnið út frá eftirfarandi einkunarorðum. Fræðsla, forvarnir, samstarf, sýnileiki, virðing, vinna, viðhorf, réttlæti, þátttaka og lífsgæði.