Heimilisfræðivalið býður í mat

Foreldrar og kennarar duttu aldeilis í lukkupottinn í gær, en þá bauð heimilisfræðivalið okkur í mat á Bárunni. Þar var dásemdar matur í boði, hugguleg stund í góðum félagsskap. Í forrétt var sveppasúpa, þá pastaréttur með kjötsósu og brauði og að lokum dásemdar súkkulaðikaka með rjóma og kaffi með! Krakkarnir þjónuðu til borðs og stóðu sig frábærlega undir styrkri stjórn Niks sem hefur leiðbeint þeim í haust við matseld og annað sem tengist öðru heimilisvafstri. Takk fyrir okkur þetta var alveg frábær!