Gott er að fá gesti

Á föstudaginn var gestkvæmt hér hjá okkur í skólanum en þá komu kennarar frá Hrísey í heimsókn sem og starfsfólk Grunnskólans á Borgarfirði eystri. Það er ætíð sérlega ánægjulegt að fá gesti og við hverja komu lærum við eitthvað nýtt, því glöggt er gests augað. Það er líka gaman að segja frá skólastarfinu, heyra sögur frá öðrum skólum, hlægja saman og kynnast nýju fólki. Takk fyrir að líta við hjá okkur og vonandi getum við endurgoldið heimsóknina fyrr en síðar!