Göngum í skólann

Nú er að baki vikan þar sem átak var í því að koma gangandi í skólann. Krakkarnir stóðu sig mjög vel - og sumir í starfsmanna hópnum líka, en aðrir síður! Kannski eins og gengur. Í tilefni af þessu gönguátaki, sem vonandi skilar sér í því að við göngum oftar í skólann, fögnuðum við sérstaklega nýjum gangbrautum í bænum. Nú hafa krakkarnir sem koma austan að gangubrautir til að fara yfir á leið sinni upp á Holtið. Næsta skref verður svo kláralega að setja gangbraut á Langanesveginn, í nágrenni skólans. Húrra fyrir góðri viku og góðum gangbrautum!