Göngum í skólann

Grunnskólinn á Þórshöfn mun taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Embætti landlæknis, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Samgöngustofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla. Göngum í skólann verður sett mánudaginn 21. september og lýkur formlega föstudaginn 25. september. Ýmsar uppákomur verða þessu tengdar í vikunni og munu allir starfsmenn og nemendur skólans taka þátt í því. Skólabíll mun stoppa á bílastæði við Sparisjóðinn og munu nemendur ganga þaðan í skólann þessa viku. Eigum skemmtilega viku saman í Göngum í skólann!